Líklega er besta leiðin til að kynnast verkefnum í stafrænni umbreytingu Hafnarfjarðarbæjar að kynna sér verkefnasögur sem ég hef ritað undanfarin ár á vef bæjarins. Alls eru þetta 28 verkefnasögur. Misstórar en margt smátt gerir eitt stórt. Til að hefja stafræna umbreytingu þarftu að skapa þér vinnufrið og setja út nokkur einföld verkefni (e. low-hanging fruits) sem þó skipta máli í þjónustunni.
Þessa leið völdum við í stafrænni umbreytingu bæjarins. Ég er stoltur af þessari vegferð sem hefur verið unnin með frábæru teymi innanhúss auka margreyndra ráðgjafa og færustu sérfræðinga á öllum sviðum stafrænnar þjónustu.
Hér eru nokkrar helstu verkefnasögunar en þær má nálgast í heild sinni á vef bæjarins.
- Stafvæðing byggingarleyfisumsókna sparar 14,7 milljónir árlega
- Stafrænni þjónustu leikskólanna umbylt
- Stafrænt vinnuafl tekur til starfa
- Stafrænar lausnir í mannauðsmálum skila 22,6 m.kr í árlegum sparnaði
- Sagan á bak við nýjan vef Hafnarfjarðarbæjar
- Stafræn umbreyting í Hafnarfirði – 1160 dagar
- Einföld stafræn lausn fyrir leigu á matjurtagörðum
- Ábendingagátt sem byrjaði með hvelli!
- Við höfum alltaf gert þetta svona!
- Menning og hugarfar skiptir mestu máli
- Innritun í grunnskóla stafræn alla leið
- Fjárhagsaðstoð í nýju sjálfsafgreiðsluferli
- Innri vefurinn kvaddur – Workplace
- Stafræn bókasafnsskírteini innleidd
- Vitinn – nýtt hönnunarkerfi Hafnarfjarðarbæjar
- Kortavefur Hafnarfjarðar er öflug rauntímaveita
- Stuðningur við erlend tungumál
- Snjallbærinn Hafnarfjörður verður til
- Ný útgáfa af skóladagatölum
- Stafrænt ferðalag – fyrstu 100 dagarnir