Vefstjóra er nauðsynlegt að hafa gott vald á eigin tungumáli og helst einnig vera vel fær í enskri tungu. Það er enginn vefur án texta og efnis og þetta er í senn mikilvægasti hluti vefsins og sá vanmetnasti.
Hann þarf að hafa innsýn í starf markaðsfólksins og skilja þarfir þeirra og um leið hafa hemil á þeim! Vefstjóri þarf að kunna skil á SEO málum (leitarvélabestun), metatögum og öðru sem þarf til að gera vefinn okkar sýnilegan.
Hann þarf líka að geta talað við stjórnendur, haft sannfæringarkraft til að tryggja stuðning stjórnenda við vefmálin og fá peninga til að sinna þeim vel. Það gerist víst ekki mikið án þeirra.
Og líklega allra mikilvægasti hæfileikinn er sá að geta tekið ákvarðanir! Ef hópur af fólki er kallaður saman til að fara yfir útlitstillögur að vef þá er jafn líklegt að fáist jafn margar skoðanir og fólkið er margt inni á fundinum. Þá er mikilvægt að vefstjóri taki slaginn og leiðir umræðuna og það er vefstjóra að taka lokaákvörðun. Markaðsfólkið má ekki ráða of miklu, ekki heldur tæknifólkið og ekki forstjórinn! Kúnstin er hins vegar að taka tillit til allra þessara ólíku skoðana og láta sem að allir hafi haft áhrif á lokaútkomuna.