Á síðustu árum hef ég reglulega flutt fyrirlestra af ýmsu tilefni. Hér að neðan má finna fyrirlestra og erindi sem sviðsstjóri hjá Hafnarfjarðarbæ og fyrir neðan nokkra eldri fyrirlestra.
- Ráðstefna Hafnarfjarðarbæjar 10. nóvember 2022 – 1160 dagar í stafrænni umbreytingu**
- Stjórnunarverðlaun Stjórnvísis 15. febrúar 2022 – Þakkarræða**
- Stafræni hæfniklasinn 24. maí 2022 – Finna fólkið og búa til teymi í stafrænum umbreytingum**
1160 dagar í stafrænni umbreytingu – Ráðstefna Hafnarfjarðarbæjar – 10. nóvember 2022
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísis 2022 – þakkarræða
Mér hlotnaðist mikill heiður árið 2022 þegar ég fékk stjórnendaverðlaun í flokki millistjórnenda á vegum Stjórnvisis sem er viðurkenning fyrir fagleg störf og stjórnun.
Finna fólkið og búa til teymi í stafrænum umbreytingum
Í þessu erindi fjalla ég um stafræna vegferð sem hafði staðið yfir í tæp þrjú ár og hvernig við sjáum framhaldið til næstu ára í stafrænum umbreytingum og hve mikilvægt er að fá fólkið með sér því þó tæknin sé mikilvæg er hún til lítils ef menning og hugsun fylgir ekki með.
Eldri fyrirlestrar
- Ljósmyndarafélag Íslands, 21. febrúar 2019: Hvað einkennir góða vefi 2019?
- Ferðamálastofa, 18. desember 2018: Starf vefstjórans í hnotskurn (myndband)
- Siteimprove ráðstefna, Reykjavík, 8. mars 2018: Vefurinn taminn – að koma böndum á efnismikla vefi með tiltekt, leit og síun
- Tækniskólinn, 8. janúar 2018, Stafræn aðlögun
- Hádegisverðarfundur faghóps um vefstjórnun hjá Ský, Reykjavík, 6. desember 2017: Vefstjóri í útrýmingarhættu? (pdf)
- Markaðshádegi Stefnu, 12. maí 2017: Vefstjóri, veftæknir eða stafrænn leiðtogi?
- Morgunverðarfundur SVEF, 17. nóvember 2015: Hvað kostar vefur? Um mat á tilboðum og val á samstarfsaðila.
- Hádegisverðarfundur faghóps um vefstjórnun hjá Ský, Reykjavík, 23. september 2015: Starfsumhverfi vefstjóra. Um niðurstöður netkönnunar
- Hádegisverðarfundur faghóps um vefstjórnun hjá Ský, Reykjavík, 27. ágúst 2014: Mikilvægi vefstefnu. Ertu háseti eða skipstjóri á þínum vef?
- UT messan, Reykjavík, 7. febrúar 2014: Ríkisvefur Íslands. Hvað getum við lært af gov.uk?
- SVEF bjórkvöld, Reykjavík, 7. nóvember 2013: Búddismi og notendaupplifun. Þetta snýst ekki um trúarbrögð
- Ríkiskaup, Ráðstefna, Reykjavík, 7. nóvember 2013: Betri opinberir vefir. Sex spora kerfið til bættrar vefheilsu
- EuroIA, Edinborg, 26-28. september 2013: Buddhism and User Experience. It’s not about religion.
- Vefmessa Advania, Reykjavík, 1 febrúar 2013*
- Hugbúnaðarráðstefna Ský, Reykjavik, 21. nóvember 2012*
- Future of Nordic Retail Banking, Stokkhólmi, 3. október 2012*
- Nästa steg för finansiella tjänster, Stokkhólmi, 3. október 2012*
- The Future of Nordic Retail Banking, Kaupmannahöfn, september 2011*
* Sem starfsmaður Íslandsbanka
** Sem starfsmaður Hafnarfjarðarbæjar
Hvað kostar vefur? Um mat á tilboðum og val á samstarfsaðila
Frá morgunverðarfundi SVEF 17. nóvember 2015.
Erindi mitt hefst á 12 mínútu og er um 25 mínútur.
Einnig má lesa grein sem er byggð á efni fyrirlestursins.
UT messan 2014
Ríkisvefur Íslands. Hvað getum við lært af gov.uk?
Athugið fyrirlesturinn er um 30 mínútur en á eftir voru umræður í rúmar 10 mínútur.
Á UT messu 7. febrúar 2014 hélt ég erindi um breska ríkisvefinn gov.uk og freistaðist að svara spurningunni hvort þetta væri leið fyrir Ísland? Svarið er já, íslensk stjórnvöld eiga hiklaust að skoða bresku leiðina og stuðla þannig að stórbættri rafrænni þjónustu og betri nýtingu fjármagns.
Einnig má lesa grein sem er byggð á efni fyrirlestursins.
Uppfært 27. júlí 2019